Núpur
Núpur
Núpur

Deildarstjóri á deild yngstu barna

Leikskólinn Núpur auglýsir eftir deildarstjóra í 5 deilda leikskóli sem staðsettur er í Núpalind 3. í Kópavogi. Í Núpi starfar stór hópur leikskólakennara.

Einkunnarorð Núps eru sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Við leggjum áherslu á Fjölgreindir í leikskólastarfi og að hin siðferðislegu gildi samfélagsins endurspeglist í öllu leikskólastarfinu s.s. virðing fyrir einstaklingnum, samábyrgð, umhyggja, sáttfýsi og tjáningarfrelsi allra.

Fjölgreindir í leikskólastarfi hjálpa okkur að sjá hvernig hvert barn lærir best og hvað við getum gert til að auðvelda því að nýta allar greindir til náms. Í leikskólanum eru börn með mismunandi atgervi og frá ólíkum menningarheimum og leitast er við að hvert barn fái viðfangsefni við sitt hæfi.

Upplýsingar um leikskólann má finna á http://nupur.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að menntun og uppeldi barna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Ber ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Ber ábyrgð á daglegri stjórnun mannauðs, skipulagningu og mati á starfi deildarinnar ásamt miðlun upplýsinga innan deildar, milli deilda og til leikskólastjórnenda
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir lögum um leikskóla, skólanámskrá og starfsáætlun skólans
  • Ber ábyrgð á foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Reynsla af stjórnun er kostur
  • Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Lausnamiðuð hugsun og geta til að mæta óvæntum aðstæðum
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Skapandi hugsun og metnaður í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta og ritfærni skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
  • Vilji til að taka þátt í þróun á faglegu starfi
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Frítt fæði
Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Núpalind 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar