Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur

Deildarstjóri

Laus er staða deildarstjóra í leikskólanum Furuskógi í Fossvogi. Leikskólinn er starfræktur í tveimur húsum í Fossvoginum og liggur vel við samgöngum.

Einkunnarorð skólans eru Gleði, Vinsemd og Virðing, og er áhersla lögð á lýðræði, sköpun, útinám og lífsleikni í starfi með börnunum. Skólinn hlaut Regnbogavottun í apríl 2022.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

(Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi).

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra. Deildarstjóri er hluti af stjórnunarteymi skólans, ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfs deildar og samstarfi við foreldra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af starfi í leikskóla er skilyrði
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Áhugi á leikskólastarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta er æskileg
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum
  • Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Frítt fæði á vinnutíma, grænmetis- og veganfæði í boði
  • Samgöngustyrkur
  • Reykjavíkurkort sem veitir aðgang að söfnum borgarinnar, ókeypis bókasafnskort og frítt í sundlaugar Reykjavíkur
  • Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur3. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaland 28, 108 Reykjavík
Háaleitisbraut 175, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar