

Dalvíkurskóli: Íþróttakennari
Dalvíkurskóli auglýsir eftir íþróttakennara (85% starfshlutfall) frá og með 1. ágúst 2026. Um framtíðarráðningu er að ræða. Næsti yfirmaður er deildarstjóri eldra stigs.
· Vinnur samkvæmt skólanámskrá, kennsluáætlunum.
· Undirbýr kennsluáætlanir og endurmat.
· Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
· Foreldrasamstarf.
· Umsjón með bekk og heimastofu.
· Íþróttakennsla
· Teymiskennsla.
· Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
· Sérhæfð hæfni í íþróttum.
· Starfsreynsla á grunnskólastigi í íþróttum.
· Hugmyndaríki, jákvæðni og sveigjanleiki.
· Góð færni í mannlegum samskipum.
· Góð færni í íslensku.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Þarf að geta unnið í teymi með öðrum.
· Áhugi á notkun tækni í skólastarfi.
· Hreint sakavottorð.







