Árblik
Árblik
Árblik

Dagdvölin Árblik óskar eftir leiðbeinanda

Dagdvölin Árblik óskar eftir starfsmanni í 80% starf í stöðu leiðbeinanda. Árblik er almenn dagdvöl fyrir 67 ára og eldri. Unnið er mánudags til fimmtudags, frí á föstudögum, um helgar og rauða daga.

Starfsmaður í dagdvöl starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umönnun þjónustuþega  
  • Stýra virknistarfi þjónustuþega  
  • Veita þjónustuþegum félagsskap og stuðning  
  • Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með öldruðum æskileg  
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð  
  • Færni í mannlegum samskiptum og samvinnu áskilin  
  • Góð íslenskukunnátta áskilin  
  • Jákvæðni, þolinmæði, stundvísi og heiðarleiki áskilin 
Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 51, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar