
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla ásamt hleðslukrönum og ábyggingum. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Hankook, Nexen og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, Merlo skotbómulyftarar, ZF bátagírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Trime ljósamöstur, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Klettur er hluti af Styrkás

CAT - Vélvirki á vélaverkstæði
Við leitum að öflugum vinnufélaga til að ganga til liðs við öflugt teymi vélvirkja á verkstæði okkar í Klettagörðum í Reykjavík. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Leitum við að aðila sem getur unnið sjálfstætt. Starfið felur í sér vinnu inni á verkstæði sem og á starfsstöðum viðskiptavina við vinnuvélar og tæki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining á vélum, gírkössum, skiptingum, vökvakerfum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum
- Almenn viðhaldsvinna, s.s. viðgerðir á vélum, gírkössum, skiptingum, vökvakerfum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda
- Framfylgja öryggis- og brunareglugerðum
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi sem vélvirki
- Kunnátta til að fara með bilanagreinar, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri er kostur
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Sterkt og virkt starfsmannafélag.
- Íþróttastyrkur og niðurgreiddur hádegisverður
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Vélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Rafvirki - Vélstjóri - Vélvirki
Heitirpottar.is

Sölumaður í verslun
Dynjandi ehf

Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy

Umsjónarmaður véla og tækja
Vegagerðin

Tæknistjóri hjá MAN á Íslandi óskast.
Kraftur hf.

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Ljósameistarann vantar fleiri hendur á verkstæði
Ljósameistarinn ehf

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu
Orka náttúrunnar

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni
Þjónustumiðstöð Kópavogs