
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Brúkranamaður - verkstjóri á útisvæði
Steypustöðin leitar að öflugum og ábyrgum aðila í starf Brúkranamanns / verkstjóra á útisvæði.
Starfið felur í sér daglega stjórnun og skipulag vinnu á útisvæði, auk þess, notkun brúkrana við lestun og losun á vörum. Viðkomandi ber ábyrgð á að tryggja skilvirkt flæði, öryggi á svæðinu og góða samvinnu við aðrar deildir.
Viðkomandi þarf að vera skipulagður, ábyrgur og lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og hæfni til að leiða aðra.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkstjóri á útisvæði.
- Umsjón með lestun á útisvæði.
- Vera vakandi yfir gæðum framleiðsluvöru.
- Umsjón með daglegu eftirliti á krana og láta vita ef upp koma bilanir.
- Ábyrgð á útisvæði hvað varðar hreinlæti og öryggi.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla af byggingarvinnu sem nýtist í starfi.
- Getur lestið teikningar í byggingariðnaði.
- Hafa reynslu af vinnu við járn.
- Hafa gilt leyfi til að stjórna brúkrana.
- Þekking á gæða- og öryggismálum.
- Heiðarleiki og sinna skyldum sínum af kostgæfni.
- Jákvætt viðhorf.
- Stundvísi og reglusemi.
- Áhugi og færni í mannlegum samskiptum.
- Mikil öryggis-, gæða- og umhverfisvitund.
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Hádegismatur
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur21. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Engjaás 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiHreint sakavottorðJákvæðniÖkuréttindiSkipulagTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)
