
Linde Gas ehf
Linde Gas ehf - áður Ísaga ehf var stofnað 1919. Linde Gas framleiðir og flytur inn gas fyrir iðnað, matvælaframleiðendur og Heilbrigðiskerfið.
Súrefnisverksmiðja er starfrækt í Vogum á Vatnsleysuströnd þar sem súrefni og köfnunarefni í fljótandi formi er unnið úr andrúmsloftinu.
Koldíoxíðverksmiðja er á Hæðarenda í Grímsnesi þar sem koldíoxíðrík heitavatnsæð er nýtt.
Hylkjaáfyllingarstöð ásamt skrifstofu var nýlega reist og tekin í notkun að Búðahellu 8 í Hafnarfirði og starfsemi fyrirtækisins á Breiðhöfða lögð að fullu niður síðsumars 2023.

Bílstjóri í aksturs og þjónustustarfs
Linde Gas leitar að traustum og áreiðanlegum bílstjóra í krefjandi starf í hylkjadreifingardeild fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu. Ekið er á 6 og 8 hjóla kassabílum við dreifingu á gashylkjum og öðrum vörum fyrirtækisins. Starfið skiptist í aksturs og þjónustustörf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útkeyrsla gashylkja
- Þjónusta við viðskiptavini
- Tengingar við skiptistöðvar gashylkja
- Áfylling fljótandi gass á tanka viðskiptavina
- Tiltekt pantana og tilfallandi störf við dreifingu
- Almenn umhirða bíla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Aukin ökuréttindi C, CE
- Hreint sakarvottorð
- ADR, stykkjavara (æskilegt)
- Reynsla af akstri flutningabíla (2 ár+ æskileg)
- Lyftararéttindi (æskileg)
- Rík öryggisvitund
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Almenn tölvukunnátta
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi og samviskusemi
- Reyklaus
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Búðahella 8, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiÚtkeyrsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bílstjóri með meirapróf óskast
Dreki ehf

Starfsmaður í malbikun og vörubílaakstur
Malbikstöðin

Cleaning Camper Vans
Campeasy

Útkeyrsla og lager
Ofar

Vaktstjóri farþegaaksturs
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sumarstarf í verslun á Akureyri
Þór hf

Bílstjóri C1 réttindi
Borg Byggingalausnir ehf.

Meiraprófsbílstjóri óskast Framtíðarstarf.
Jarðtækni

Bílstjóri í vöru dreifingu
J. S. Þjónusta ehf.

Umsjónarmaður vöruafgreiðslu
Pósturinn

Tækjamenn og meiraprófs bílstjórar
Dráttarbílar Vélaleiga ehf

Útkeyrsla / lager
Icetransport