
Bílstjórar og vélamenn
Suðurverk óskar eftir að ráða bílstjóra og vélamenn til starfa við fjölbreytt jarðvinnuverkefni.
Leitað er að bílstjórum með meirapróf til aksturs á fjögurra öxla bílum, búkollum og námubílum, auk vélamanna með gild vinnuvélaréttindi til starfa á vinnuvélum fyrirtækisins.
Verkefni fyrirtækisins eru bæði á höfuðborgarsvæðinu og víðs vegar um landið. Helgarvinna og úthaldsvinna getur komið til eftir eðli og umfangi verkefna hverju sinni.
Leitað er að ábyrgum og áreiðanlegum einstaklingum sem sýna góða umgengni um tæki og búnað, geta unnið sjálfstætt og eiga auðvelt með samstarf. Mikilvægt er að viðkomandi sýni fagmennsku í starfi, hafi ríka öryggisvitund og geti tekist á við fjölbreytt verkefni við mismunandi aðstæður.
Fyrirspurnir og nánari upplýsingar um starfið veitir Baldur Emil Líndal í gegnum netfangið [email protected].
Sótt er um starfið á Alfreð.is eða með því að senda umsókn og ferilskrá á [email protected].











