

Bifvélavirki/einstaklingur með mikla reynslu af viðgerðum
Við leitum að hæfum og metnaðarfullum bifvélavirkja eða einstaklingi sem hefur mikla reynslu í viðgerðum til að ganga til liðs við öflugt teymi á verkstæðinu okkar. Ef þú hefur ástríðu fyrir bílum, vélum og tækjum og vilt vinna í framsæknu og skemmtilegu umhverfi, þá er þetta tækifærið fyrir þig!
· Viðhald og viðgerðir á bílum, malbikunarvélum, fræsurum og öðrum tækjum fyrirtækisins.
· Greining og bilanaleit
· Uppsetning og skipti á varahlutum
· Samskipti við innri viðskiptavini
· Sveinspróf í bifvélavirkjun eða sambærileg menntun kostur
· Reynsla af viðgerðum og viðhaldi ökutækja
· Góð samskiptahæfni og þjónustulund
· Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
· Almenn ökuréttindi











