
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla ásamt hleðslukrönum og ábyggingum. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Hankook, Nexen og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, Merlo skotbómulyftarar, ZF bátagírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Trime ljósamöstur, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Klettur er hluti af Styrkás

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Við leitum að öflugum vinnufélaga í bílgreiningar og viðgerðir á vörubílum, hópferðabílum og tengdum búnaði. Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi bifvélavirkja á vörubílaverkstæði. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu. Leitað er að starfskrafti á verkstæði okkar í Hafnarfirði við Einhellu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningar á rafbúnaði, vélum, gírkössum, drifum, undirvagni og öðrum íhlutum.
- Standsetningar á nýjum bílum ásamt ásetningu á ýmsum aukabúnaði.
- Almenn viðhaldsvinna, s.s. viðgerðir á vélum, gírkössum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum.
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda.
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi sem bifvélavirki eða vélvirkjun er kostur.
- Fagmennska og vinnusemi.
- Kunnátta til að fara með bilanagreina, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri.
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur og niðurgreiddur hádegisverðurmatur
- Sterkt og virkt starfsmannafélag
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur17. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Einhella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunÖkuréttindiVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkstæði
Aflvélar ehf.

Kælivélamaður / Vélfræðingur
Hitastýring hf.

Viðgerðarmaður á verkstæði
Tæki.is

Bifvélavirki
Toyota

vélvirkjar - Vélsmiðja
VHE

Starfsmaður í Þjónustudeild
Landstólpi ehf

Bifreiðasmiður/bílamálari/bifvélavirki
Réttingaverkstæði Jóa

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Sauðárkróki
Frumherji hf

Tæknimaður í vinnslu
First Water

Mechanical Subject Matter Expert
atNorth

Ert þú reynslumikill vélvirki eða vélstjóri?
Orkuvirki

Óskum eftir vélvirkja
Trefjar ehf