Bifvélavirki
Volvo og Polestar verkstæði Brimborgar við Bíldshöfða 6 í Reykjavík leitar að hæfileikaríkum og duglegum einstaklingi í starf bifvélavirkja í starf bifvélavirkja á Volvo og Polestar bílum.
Starfið er einstaklega lifandi og skemmtilegt þar sem unnið er við nýjustu bílatækni í framúrskarandi vinnuaðstöðu með öflugan búnað til.
Starfsmannaaðstaða er einstök með framúrskarandi búningaaðstöðu ásamt því að öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá Brimborg.
Við leitum að einstaklingi til að ganga til liðs við Volvo og Polestar þjónustuteymi Brimborgar í framúrskarandi vinnuumhverfi sem þykir spennandi að vinna við nýjustu tækni í frábærum hóp tæknimanna með góðum stuðningi samstarfsmanna og stjórnenda þar sem eru miklir möguleikar til símenntunar.
Vinnutími er mán-fim frá 08:00-17:00 og föstudaga frá 8:00-15:15.
Við hvetjum alla sem uppfylla hæfniskröfur að sækja um óháð kyni.
Sæktu um strax í dag og gakktu í skemmtilegan hóp fagmanna Volvo og Polestar hjá Brimborg.
- Vinna í pari með öðrum í VPS (Volvo personal service) teyminu
- Vinna við bilanagreiningu, þjónustu og viðgerðir á Volvo og Polestar bílum
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
- Sveinspróf í bifvélavirkjun, meistararéttindi kostur
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt
- Gilt bílpróf
Margvísleg hlunnindi sbr. mannauðsstefnu Brimborgar
Niðurgreiddur hádegismatur