
Bassakennari 35% staða
Starfið felst fyrst og fremst í að kenna á rafbassa þó geta verið einstaka nemendur á klassískum bassa.
Kennsla í rytmískum bassaleik, mögulega klassískum. Einstaklingskennsla en þó getur verið um að ræða hópkennslu í einhverjum tilfellum.
Undirbúningur kennsluáætlana, stundatöflugerð og umsjón með nemendahópnum og samskipti við nemendur/forráðafólk.
Skipulagning og þátttaka í tónleikum og tónfundum og þátttaka í deildar- og kennarafundum.
Skráning og utanumhald nemenda í nemendaumsjónarkerfi
Fagleg þróun og þátttaka í starfsdögum og endurmenntun.
Háskólamenntun í bassaleik eða sambærilegt próf frá viðurkenndum skóla.
Reynsla af bassakennslu, kostur er viðkomandi getur kennt á fleiri hljóðfæri.
Ástríða fyrir kennslu og fjölbreyttum kennsluaðferðum auk góðra samskiptahæfileika.
Skipulagsgáfa og nákvæmi er kostur í starfinu en einnig frumkvæði og sköpunargáfa.
Þekking á helstu forritum og öppum sem tengjast starfinu.
Skólinn býður góða starfsaðstöðu í sérútbúnum tónlistarstofum.
Stuðning við faglega þróun og þátttöku í endurmenntun.
Vinnu í samvinnu við hæft og fjölbreytt kennarateymi.
Íslenska







