

Apótek Hafnarfjarðar - Sala og þjónusta, framtíðarstarf
Apótek Hafnarfjarðar - Sala og þjónusta, framtíðarstarf
Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í starf við sölu og þjónustu í framtíðarstarf. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölum lyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.
Hlutverk og ábyrgð:
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Almenn þjónusta og afgreiðslustörf
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi í apóteki er kostur
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
- Lágmarksaldur er 20 ára
Vinnutími virka daga frá 9-17.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lukazs Bednarek,Lyfsöluleyfishafi, [email protected]
Um Apótek Hafnarfjarðar:
Apótek Hafnarfjarðar er hluti af Lyf og heilsu en félagið rekur í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjunum Lyf og heilsu, Apótekarinn, Garðsapótek og Apótek Hafnarfjarðar. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.
Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.
Íslenska










