
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili eru rekin í samsteypu ásamt Eir-öryggisíbúðum. Á heimilunum er fagleg umönnun, öflug læknisþjónusta með ýmsum sérúrræðum fyrir hópa svo sem blinda og sjónskerta, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% vistmanna útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks, um 650 manns, með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !

Alhliða störf í eignaumsýslu - Sumarstarf
Óskað er eftir ráða starfsmann í sumarstarf í alhliða eignaumsýslu hjá Eir hjúkrunarheimili og tengdum félögum.
Starfið felur í sér að sinna ýmsum beiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri stofnunarinnar. Mikið af fjölbreyttum verkefnum í lifandi byggingum Eirar og tengdum félögum.
Starfið er laust strax og ráðning er út sumarið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir ýmsum verkbeiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri.
- Umhirða, umsjón og almennt viðhald eigna, bílastæða og lóða.
- Fjarlægir rusl og lín af deildum.
- Þrif á húsgögnum og fleira.
- Matarsendingar.
- Sendast með sýni til rannsóknar.
- Sendast eftir vörum til viðhalds og fleira.
- Sinnir öðrum sérverkefnum sem næsti yfirmaður eða stjórnandi felur honum og eðlilegt getur talist að rúmist innan verksviðs hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af viðhaldi eigna er kostur.
- Að umsækjandi sé 19 ára á árinu eða eldri.
- Bílpróf er skylda
- Líkamlegt hreysti
- Góð mannleg samskipti og rík þjónustulund
- Jákvæðni, greiningarhæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi
Boðið er upp á
- Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni
- 36 stunda vinnuviku
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2025. Við hvetjum öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðmundur Kristinn Árnason, Deildarstjóri eignaumsýslu, í síma 522-5789 eða [email protected]
Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.
Auglýsing birt26. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiHandlagniHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiSveigjanleikiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Við leitum að öflugum þjónustubílstjóra
Íslenska gámafélagið

Bifvélavirki / Mechanic - Summer job (May - Oct)
Lotus Car Rental ehf.

Smiður óskast eða verkamaður í byggingariðnaði
Tóm Tjara

Vagnstjóri / City Bus Driver
Almenningsvagnar Kynnisferða ehf

Viðhaldsfulltrúi
Alma íbúðafélag

Meiraprófsbílstjóri óskast Sumarstarf/Framtíðarstarf.
Jarðtækni

Viltu vinna í íþróttahúsi ?
ÍR

Vélamaður á Reyðarfirði
Vegagerðin

Öryggisvörður
Max Security

Húsvörður hjá Grundarheimilunum
Grundarheimilin

Kranabílstjóri
Steypustöðin

Finnst þér gaman að vakna snemma og keyra?
Lemon