

Afgreiðsla eða Crêpes gerð - Akureyri
Eldhússtarfið felur í sér almenn eldhús störf svo sem að framreiða alla crêpes réttina af matseðlinum okkar, prepp á áleggjum, uppvask, þrif & vörumóttaka.
Starfið er skemmtilegt fyrir þá sem finnst gama að elda og vinna með mat.
Reynsla í eldhúsvinnu er kostur en aðeins er nauðsynlegt að hafa áhuga á eldamennsku.
Afgreiðslustarfið felur fyrst og fremst í sér að vera með góða þjónustulund og taka vel á móti gestum, geta spjallað við þá og gefið ráðleggingar hvað skal panta ásamt því að passa upp á hafa staðinn snyrtilegan og fínann.
Starfið er skemmtilegt fyrir þá sem vilja læra að gera fallega kaffidrykki og jafnvel skemmtilega kokteila!
Nauðsynlegt er að geta unnið hratt og vel undir pressu og átt góð mannleg samskipti, jafnvel þó komi upp erfiðar aðstæður.
Um er að ræða helgar vinnu og einstöku virk kvöld.
- Geta átt góð samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini.
- Klára daglegan verkalista.
- Passa upp á að allt sé snyrtilegt og fara eftir hreinlætis stöðlum.
- Elhússtarf: Skera grænmeti & álegg, útbúa pantanir á crêpes, þrif & uppvask.
- Afgreiðsla: Útbúa drykki, skera kökusneiðar, stimpla inn pantanir & þrif á staðnum.
- Íslensku kunnátta skylirði
- Stundvísi
- Heiðarleiki
- Frumkvæðni
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Snyrtimennska & gott auga fyrir því sem þarf að þrífa
- Góð athygli & gott minni
- Reynsla af afgreiðslustarfi / eldhúsvinnu
- Áhugi á eldamennsku og almenn kunnátta í matargerð eða kaffigerð
- 50% Starfsmanna afsláttur á vinnutíma
- Fæði - Alltaf eitthvað í boði á kaffistofunni
- 30% Starfsmanna afsláttur utan vinnutíma
Enska
Íslenska










