
Afgreiðsla
Við hjá Bæjarbakaríi í Hafnarfirði erum að leita eftir starfsmanni í fullt starf í afgreiðslu og aðstoð í bakaríin, unnið er eftir kerfinu 2-2-3 unnið er virka daga og önnur hver helgi.
Ef þú ert þjónustulundaður, jákvæður, stundvís og áreiðanlegur þá ert þú einstaklingurinn sem við erum að leita eftir, Íslensku kunnátta er skilyrði.
.
Fyrirtækið Bæjarbakarí var stofnað í mars 1990 og hefur starfað í Hafnarfirði alla tíð. Okkar markmið eru skýr; að bjóða upp á gott vöruúrval, góða þjónustu og góða fagmenn í bakstrinum. Bakstur í bakaríinu okkar einkennist af gæðahráefni og handverki sem skilar sér í fjölbreyttu úrvali af brauði og bakkelsi. Við bökum einnig tertur fyrir öll tækifæri. Þá er einnig aðstaða hjá okkur til að fá sér kaffi og nýbakað bakkelsi.
Afgreiðsla og framleiðslustörf
Íslenska










