Austurkór
Austurkór
Austurkór

Aðstoðarleikskólastjóri

Austurkór er 6 deilda leikskóli í Kópavogi þar sem dvelja um 120 börn á aldrinum 1–6 ára. Austurkór er lifandi leikskóli í stöðugri þróun þar sem skólanámskráin okkar er flæðandi. Hún er síbreytileg og tekur mið af því fólki sem er í skólanum hverju sinni, hæfni þeirra og reynslu.

Í Austurkór horfum við á börnin sem hæfileikaríka einstaklinga og viljum vinna með styrkleika þeirra á margvíslegan og fjölbreyttan hátt. Við lítum á að börn séu í eðli sínu skapandi og að skólastarfið eigi að veita fjölbreytt tækifæri til sköpunar með margvíslegum efnivið. Austurkór er lærdómssamfélag þar sem hver einstaklingur innan samfélagsins er mikilvægur og því þýðingarmikið að rödd hvers og eins heyrist. Þessi samfélagssýn endurspeglast í merki skólans sem er hús byggt úr púslum. Hvert okkar er eitt púsl í heildarmynd Austurkór.

Skólastarfið í Austurkór er unnið í samræmi við Aðalnámskrá leikskóla og byggir á félagslegri hugsmíðahyggju. Við horfum til kenninga Vygotskys um nám og þroska barna og þeirrar hugmyndafræði sem birtist í skólastarfi Reggio Emilia.

Við óskum eftir öflugum aðstoðarleikskólastjóra sem brennur fyrir faglegri forystu, góðum starfsanda og metnaðarfullri skólaþróun. Aðstoðarleikskólastjóri tekur virkan þátt í daglegri stjórnun og rekstri leikskólans. Lykilhlutverk er að leiða og styðja faglegt starf, efla starfsfólk og tryggja farsæld barna. Aðstoðarleikskólastjóri vinnur náið með leikskólastjóra að daglegri stjórnun og skipulagningu skólastarfsins og tryggir að starfið sé í samræmi við aðalnámskrá, skólanámskrá og verklagsáætlanir skólans. Aðstoðarleikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Kópavogsbæjar.

Einkunnarorð Austurkórs eru samvinna, lýðræði og atorka.

Heimasíðan okkar er: https://austurkor.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri skólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu skólastarfsins
  • Er faglegur leiðtogi og mentor fyrir aðra starfsmenn
  • Tekur þátt í launavinnslu, skýrslu- og áætlanagerð
  • Tekur þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólanum
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunafræða 
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
  • Forystuhæfni og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og færi til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins og íþróttastyrk. 
Styttri vinnuvika, stytting að hluta til notuð í páskafrí,  vetrarfrí og jólafrí. 
Frítt fæði. 

Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur26. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurkór 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft PowerPointPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar