NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona / personal assistant

[Speaking Icelandic is not required if applicant speaks English well, see information in English below]

Ég er 37 ára gömul fötluð kona í Kópavogi sem þarf aðstoð við flestar athafnir daglegs lífs og er því með NPA (notendastýrða persónulega aðstoð).

Starfið felst í að hjálpa mér með allt í mínu daglega lífi, þar á meðal að halda heimilinu hreinu. Ég hef mikinn áhuga á réttindabaráttu, stjórnmálum, borðspilum, tölvuleikjum og kvikmyndum. Starfið er kjörið fyrir þær sem kjósa rólegt starfsumhverfi. Ég bý með eiginmanni og tveimur litlum hundum.

Auglýsi eftir aðstoðarkonu í hlutastarf í afleysingar í sumar. Best væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. Vaktir eru ekki mjög reglulegar vegna sumarleyfa og fleira en vaktaplan fyrir allt sumarið mun vera ákveðið í sameiningu við upphaf starfs (Algengustu vaktirnar eru þriðjudaga 18-22 og miðvikudaga 9-18).

Frá 21.ágúst verður síðan í boði föst 45-55% staða sem eru vaktir alla miðvikudaga og föstudaga 9:00-18:00.

Hægt er að sækja um annað hvort eða bæði þó auðvitað væri best að finna einhverja sem getur tekið báðar stöður, þ.e.a.s. verið afleysing í sumar og svo í föstu starfi frá 21.ágúst.

Vegna eðlis starfsins tek ég aðeins til greina að ráða konur (cis eða trans). Umsækjendur þurfa að vera búsettar á höfuðborgarsvæðinu og vera með bílpróf. Covid-19 bólusetning er skilyrði því ég er í áhættuhóp. Nauðsynlegt er að vera vel við hunda því litlu hundarnir mínir tveir eru oftast með mér og hluti af starfinu er að sinna þeim.

Sveigjanleiki, tillitsemi og góð samskiptahæfni er líka nauðsyn.

Það hvort okkar samskipti fara fram á íslensku eða ensku skiptir mig ekki máli en ég geri kröfu um að aðstoðarfólk sé vel fært í ensku til að geta átt samskipti við hinar aðstoðarkonurnar í teyminu ef þess gerist þörf.

Upplýsingar um kjarasamninga og annað um NPA má finna á npa.is

Umsóknir óskast sem fyrst.

English

NPA/personal assistance is about helping me (a 37 year old disabled woman) with living my life on my own terms. This includes helping me with everything I need to do, with taking care of my dogs and helping me keep my home clean and organized. I live in Kópavogur, I'm married and have two small dogs. My main hobbies are boardgames and video games.

This job is ideal for dog lovers and people who prefer a calm environment.

Other requirements:

  • Being a woman (cis or trans)
  • Living in Höfuðborgarsvæðið (capital region)
  • Having a drivers licence
  • Be vaccinated for covid-19
  • Being able to communicate well in English
  • Liking dogs (because my two small dogs are usually with me)
  • Being flexible and considerate

I'm looking to hire a woman into my team of NPA assistants (Independent living/Personal Assistance) as a part time backup for the summer. It would be best if you could start as soon as possible. The shifts are not regular because of summer holidays and other things affecting the plans. However, the schedule for the whole summer will be decided together with me before the job starts (most common shifts are tuesdays 18:00-22:00 and wednesdays 9:00-18:00).

From the 21rst of August I need to hire someone for a 45-55% position with shifts every Wednesday and Friday 9:00-18:00

You can apply for either position or both. Of course it would be optimal to hire the same person for both. Then you'd start by working as backup and then transition to a regular part time job at the end of summer

The union contracts and further information about NPA can be found on npa.is (in Icelandic)

Auglýsing stofnuð29. apríl 2024
Umsóknarfrestur13. maí 2024
Tungumálakunnátta
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar