
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Aðstoðardeildarstjóri endurhæfingardeildar - Hrafnista Nesvellir
Endurhæfingardeild Hrafnistu Nesvöllum óskar eftir að ráða iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara í aðstoðardeildarstjórastöðu.Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans, aðstoðar með ýmis verkefni tengd rekstri og stjórnun deildarinnar auk hefðbundinna sjúkraþjálfunarstarfa.
Um er að ræða fjölbreytt starf í þágu íbúa sem krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og framúrskarandi samskiptahæfni.
Um 80-100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við stjórnun og rekstur á starfsemi deildarinnar
- Aðstoð við að skipuleggja störf starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
- Skoðun, mat og gerð meðferðaráætlunar fyrir íbúa
- Ráðgjöf og fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Eftirfylgni á einstaklings- og hópþjálfun íbúa
- Þverfagleg teymisvinna
- Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari
- Góð samskiptahæfni og faglegur metnaður
- Jákvæðni, sveigjanleiki og frumkvæði
- Áhugi á að starfa með öldruðum
- Góð yfirsýn og skipulagshæfni
- Þekking á RAI mælitækinu er kostur
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur með strætó
- Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
- Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (9)

Viltu bæta lífsgæði fólks?
STOÐ

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi við Grunnskóla Borgarfjarðar
Borgarbyggð

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Sléttuvegur
Hrafnista

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Málastjóri í Laufeyjarteymi
Landspítali

Iðjuþjálfi með stjórnunarreynslu óskast
Alzheimersamtökin

Sjúkraþjálfari
Reykjalundur