
Orkuveitan
Orkuveitan styður vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu.
Hjá Orkuveitunni leggjum við áherslu á að vinna með fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem býr yfir eða hefur vilja til að byggja upp þá hæfni sem hentar verkefnum hverju sinni. Við tökum forystu í verkefnum og hjá okkur ríkir jákvæður starfsandi.
Við tryggjum góðan aðbúnað, sveigjanleika og sköpum starfsfólki aðstæður til að samræma kröfur vinnu og annarra þátta lífsins. Við nýtum okkur tækni í starfsumhverfi og starfsfólk nýtur jafnréttis.
Saman erum við lipur, lærdómsfús og óhrædd að prófa nýja hluti til að skapa eftirtektarverðar lausnir og ná hámarks árangri fyrir viðskiptavini og samfélagið.

Aðalbókari Carbfix
Við leitum að metnaðarfullri og lausnamiðaðri manneskju í stöðu aðalbókara Carbfix. Starfið krefst yfirgripsmikillar reynslu í reikningshaldi, uppgjörum og gerð ársreikninga og veitir einstakt tækifæri til að hafa áhrif á vöxt og þróun fyrirtækis í fremstu röð á sviði kolefnisbindingar.
Aðalbókari gegnir lykilhlutverki í að tryggja rétta og faglega meðhöndlun fjármála Carbfix og tengdra eininga (Coda Terminal og Carbfix USA) ásamt því að tryggja að starfsemin uppfylli sett lög, reglur og staðla.
Um er að ræða starf í teymi Reikningshalds Orkuveitunnar, en með skýra ábyrgð á fjárhagslegum þáttum Carbfix.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón og ábyrgð á fjárhags- og verkbókhaldi Carbfix
- Uppgjör og kynningar á mánaðar-, ársfjórðungs- og ársgrundvelli.
- Yfirsýn yfir reikningsskil og samræmi við lög, reglur og alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).
- Samskipti við endurskoðendur, skattayfirvöld og erlenda samstarfsaðila.
- Þátttaka í þróun ferla og verklags, m.a. skýrslugerð og gagnavinnslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Yfirgripsmikil reynsla af fjárhagsbókhaldi og uppgjörsvinnu, helst í alþjóðlegu umhverfi.
- Þekking á fjárhags- og verkbókhaldi.
- Góð færni í fjármálahugbúnaði, sérstaklega Business Central og Excel.
- Þekking á innleiðingu ferla og stafrænni umbreytingu er æskileg.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni í samskiptum við ólíka hagsmunaaðila.
- Lausnamiðuð og heildræn nálgun, ásamt faglegum metnaði og vilja til umbóta.
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, reikningshaldi eða tengdu sviði.
Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur20. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Bókari
Vinnvinn

Reyndur bókari
VHE

Bókari
Deloitte

Ráðgjafi í þjónustuteymi
dk hugbúnaður ehf.

Aðalbókari og bókari
AB Varahlutir

Aðalbókari
KAPP ehf

Starfsmaður í reikningagerð og innheimtu
Steypustöðin

Nefndarmaður í yfirskattanefnd
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Reyndur bókari
Nox Medical

Starf í bókhaldi og þjónustu
Aðalbókarinn ehf

Viðurkenndur bókari í hlutastarf
The Known Nords ehf.

Sérfræðingur á fjármálasviði
Heilbrigðisstofnun Vesturlands