

Sérfræðingur á fjármálasviði
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings á fjármálasviðið. Leitað er eftir drífandi starfsmanni sem sýnir frumkvæði að nýjungum í upplýsingakerfum. Viðkomandi ber ábyrgð á bókhaldi HVE og stýrir bókhaldsvinnu og uppgjörum.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands samanstendur af þremur rekstrarsviðum, heilsugæslu- sjúkra- og hjúkrunarsvið á átta starfsstöðum. Akranesi, Borgarnesi, Búðardal, Grundarfirði, Hólmavík, Hvammstanga, Ólafsvík og Stykkishólmi. Á upptökusvæðinu búa um 19 þúsund manns og HVE veitir heilsugæsluþjónustu á öllum starfsstöðvum sínum, á Akranesi er sjúkrahús og í Búðardal, Hólmavík, Hvammstanga og Stykkishólmi eru hjúkrunarheimili.
Gert er ráð fyrir að aðalstarfsstöð viðkomandi sé á Akranesi.
-
Dagleg umsjón bókhalds og ber ábyrgð á að skipulag bókhalds og vinnubrögð séu í samræmi við lög og reikningsskil ríkisins
-
Yfirumsjón með skráningu reikninga og samþykktum þeirra
-
Yfirumsjón með innheimtu
-
Umsjón með afstemmingum banka, viðskiptareikninga og virðisaukaskatts
-
Samskipti við Fjársýslu ríkisins og aðra aðila vegna uppgjörsmála og fleira
-
Uppgjörs og greiningarvinna
-
Aðkoma að áætlunargerð
-
Ráðgjöf og stuðningur við notendur fjárhagskerfa
-
Innleiðing ferla og sjálfvirkni
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun er kostur
-
Haldgóð reynsla af bókhaldsstörfum og góð bókhaldsþekking er skilyrði
-
Þekking á Orra, fjárhagskerfi stofnunarinnar er kostur
-
Þekking á Navision innheimtu og sölukerfi er kostur
-
Góð tölvufærni, sérstaklega í excel og bókhaldskerfum er skilyrði
-
Nákvæmni, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
-
Traust og góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Jákvæðni og frumkvæði
-
Góð kunnátta í íslensku og ensku













