A4
A4
A4

A4 Skeifan – Skemmtilegasta vinnan!

A4 óskar eftir að ráða sölufulltrúa í fullt starf í verslun okkar í Skeifunni. Vinnutíminn er alla virka daga frá 09:00 – 17:00. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldur

Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjórinn, Sigurborg Þóra, í síma 580-0090 eða í gegnum netfangið [email protected].

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.

Auglýsing birt17. júlí 2025
Umsóknarfrestur28. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skeifan 17, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)