A4
A4
A4

A4 Keflavík – Sölufulltrúi í hlutastarf

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í nýja verslun okkar í Keflavík. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi í hlutastarf þar sem unnið er aðra hvora helgi og einn virkan dag. Möguleiki á fleiri vöktum sé þess óskað.
Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfsþjálfun fer fram í verslun okkar í Skeifunni 17.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf.

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldurstakmark

Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2024

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Tinna Kamilla í síma 580-0090 eða gegnum netfangið [email protected]

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.

Auglýsing birt11. júlí 2024
Umsóknarfrestur22. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hafnargata 27, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar