
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Flakkari/afleysingastarfsmaður
Finnst þér gaman að flakka á milli starfsstöðva og koma til bjargar á hverjum degi?
Ef svo er þá erum við hjá Skólamat með starf fyrir þig!
Skólamatur leitar að afleysingarstarfsmanni sem flakkar á milli starfsstöðva í leik og grunnskólum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu/Suðurnesjum ef upp koma veikindi eða önnur forföll.
Vinnutími er frá 7:45-15:45, mánudaga til föstudaga.
Viðkomandi þarf að vera með bílpróf og bíl til umráða.
Starfið felst í undirbúningi og afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum í eldhúsinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áhugi á mat og matargerð er mikill kostur
- Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg
- Íslenskukunnátta kostur
- Menntun sem nýtist í starfi kostur
- Jákvæðni, snyrtimennska, sveigjanleiki, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Geta til þessa að vinna undir álagi.
Fríðindi í starfi
- Vinnufatnaður.
- Íþróttastyrkur.
- Samgöngustyrkur.
- Fjölskylduvænn vinnustaður.
Advertisement published8. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Type of work
Skills
PositivityHuman relationsPlanningPunctualFlexibility
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Production employee
Eldum rétt

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Apotek kitchen + bar

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Umönnunarstörf - Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Yfirmatreiðlsumaður/kona Einstakt tækifæri hjá Galito Restaurant
Galito ehf.

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Lyfja

Lyfja Granda - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Aðstoðarmaður í eldhúsi / Kitchen assistant
Eldhúsið Okkar