Skatturinn
Skatturinn

Viltu leiða deild mannauðs hjá Skattinum?

Leitað er að öflugum og reyndum aðila til að leiða deild mannauðs innan stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið nýtt starf þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, jafnrétti og vandaða stjórnsýslu. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Starfið felur í sér að leiða deild mannauðs á nýju sviði mannauðs-og fjármála og heyrir undir sviðsstjóra. Um er að ræða lykilhlutverk í mótun og innleiðingu stefnu í mannauðsmálum og uppbyggingu á jákvæðri vinnustaðamenningu.

Starfið felur í sér náið samstarf við framkvæmdastjórn, stjórnendur og starfsmenn stofnunarinnar, auk þátttöku í stefnumótandi ákvörðunum og umbótaverkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og framkvæmd mannauðsstefnu í samræmi við stefnumarkandi áherslur Skattsins og lögbundið hlutverk
  • Stuðla að jákvæðri, heilbrigðri og góðri vinnustaðamenningu
  • Stjórnendaráðgjöf og stuðningur í mannauðsmálum
  • Umsjón með ráðningarferli og móttöku nýrra starfsmanna
  • Vinnustaðagreiningar og stuðningur við umbætur í vinnuumhverfi
  • Aðstoð við framkvæmd kjaramála og gerð starfslýsinga
  • Umsjón og undirbúningur starfsmannasamtala
  • Tryggja að mannauðsmál séu í samræmi við lög og reglugerðir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Afburða samskiptafærni, jákvæðni og rík þjónustulund
  • Stjórnunar-og leiðtogahæfni
  • Viðamikil og farsæl reynsla af mannauðsstjórnun
  • Geta til að vinna vel undir álagi og að stýra teymi
  • Góð hæfni til upplýsingamiðlunar í minni og stærri hópum á íslensku og ensku
  • Góð stafræn færni
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stefnumótun og umbótastarfi
  • Þekking á vinnurétti og kjaramálum innan opinberra stofnana er kostur
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published7. May 2025
Application deadline26. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Katrínartún 6, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human resourcesPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.HiringPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Personnel administrationPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags