Atlas Cloud ehf.
Atlas Cloud ehf.
Atlas Cloud ehf.

Viðskiptaþróunarstjóri

Lýsing

Atlas leitar að öflugum viðskiptaþróunarstjóra (e. Business Development Manager) í fullt starf. Starfið felur í sér að opna á ný viðskiptasambönd, fylgja tækifærum eftir til lokunar og að stuðla að betri markaðssetningu Atlas.

Atlas Cloud er framtíð íslenskrar hýsingar og tækniinnviða. Í skýi Atlas (e. Cloud Computing) má geyma og vinna gögn með þeim þægindum og sparnaði sem þekkist í skýjaþjónustum án þess að senda gögn erlendis. Á tæknimáli býður Atlas upp á allt sem þarf til að keyra hugbúnað þ.m.t. virtual machines, object storage, firewalls, load balancers, Managed Kubernetes, AI inference. Eins býður Atlas afritunarlausnir fyrir SaaS þjónustur. Markmið Atlas er að tryggja stafrænt fullveldi íslenskrar tækni þannig að hugbúnaðarhýsing sé örugg, innlend og hagkvæm. Frekari upplýsingar á https://atlascloud.is

Verkefni

Fjölga viðskiptasamböndum Atlas. Greina vandamál viðskiptavina og ný sölutækifæri fyrir hýsingar- og afritunarmál. Koma Atlas og lausnum þess fyrir framan rétta aðila.

Fylgja eftir samtölum við viðskiptavini frá tækifæri til lokunar. Búa til og viðhalda sölupípum fyrir metnaðarfull veltumarkmið á hverjum ársfjórðungi. Fylgja tækifærum eftir frá samtali til samningagerðar og lokunar.

Gera Atlas sýnilegt: Sjá til þess að fólk viti af Atlas með því að stuðla að betri markaðssetningu hvort sem það eru samfélagsmiðlar, póstlistar, fréttatilkynningar, viðburðir eða aðrar frumlegar aðferðir.

Tengslamyndun: byggja upp og viðhalda sterkum samböndum við stjórnendur og forsvarsmenn í tæknimálum

Kröfur

Reynsla af sölu og tengslamyndun á fyrirtækjamarkaði B2B
Öflugt tengslanet á íslenskum markaði
Þekking og skilningur á markaðssetningu, viðskiptaþróun og tekjuvexti er mikill kostur.

Þekking og skilningur á skýjaþjónustum og tækniinniviðum er mikill kostur en ekki krafa.

Vinnustaðurinn

Atlas byrjaði fyrir rúmu ári og hefur náð ótrúlega langt á skömmum tíma með öflugu og drífandi teymi. Á skömmum tíma eru margar vörur komnar í loftið sem þjónusta þekkt innlend fyrirtæki.

Þetta er rausnarleg staða með góðum launum, söluhvata og hlutdeild í fyrirtækinu. Frábært tækifæri fyrir drifna manneskju til að taka þátt í að móta og gerast meðeigandi að næsta tæknirisa landsins.

Umsækjendur eru hvattir til að senda kynningarbréf og ferilskrá.

Advertisement published29. June 2026
Application deadline26. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Eiðistorg 13, 170 Seltjarnarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Business relations
Work environment
Professions
Job Tags