

Er AIR Smáralind að leita að þér?
Erum við að leita að þér?
Verslun Nike by AIR óskar eftir að ráða áhugasama og söludrifna starfsmenn í 70-80% starf.
Um er að ræða:
- Hlutastarf
- Verslun í Smáralind
- Vinnutími er kl. 13-19 alla virka daga
Viðkomandi þarf að vera 18 ára eða eldri, tala góða íslensku og geta hafið störf um miðjan ágúst.
Reynsla af verslunar- eða þjónustustörfum er kostur.
Um verslunina AIR.
Nike by Air er spennandi verslun í Smáralind og á Akureyri, sem býður viðskiptavinum sínum úrval af vönduðum Nike vörum, frá íþróttafötum og skóm til fylgihluta. Við bjóðum upp á einstaka verslunarupplifun þar sem við leggjum mikla áherslu á að veita viðskiptavinum okkar faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu. Verslunin AIR selur mikið úrval af Nike fatnaði sem sameinar ástríðu fyrir íþróttum, tísku og nýsköpun.
- Afgreiðsla viðskiptavina í verslun
- Veita ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina
- Áfylling á vörum og viðhald á verslunarrými
- Almenn verslunarstörf
- Heiðarleiki og áreiðanleiki
- Stundvísi og góð skipulagshæfni
- Metnaður í störfum og þjónustu
- Reynsla af verslunar- eða þjónustustörfum er kostur
Icelandic










