Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar

Íþróttamiðstöðin Varmá leitar að öflugu starfsfólki– dagvinna og hlutastörf

Íþróttamiðstöðin Varmá óskar eftir

  • Öflugri konu til starfa í 90–100% dagvinnu frá kl. 06:30–15:00.
  • Öflugum karli til starfa í 50% starfi frá kl. 08:00–12:00.
  • Öflugum karli til starfa í 50% starfi frá kl. 06:30–15:00

Um er að ræða fjölbreytt starf í lifandi umhverfi þar sem góð þjónusta, öryggi og snyrtimennska eru í fyrirrúmi.

Við leitum að ábyrgum og jákvæðum starfsmanni til starfa við klefagæslu og þrif.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok ágúst - 1.september. 2026

Athugið: Þar sem störfin fela í sér klefavörslu í kynjaskiptum klefum er óskað eftir kvenkyns umsækjanda í starf við kvennaklefa og karlkyns umsækjendum í störf við karlaklefa, í samræmi við eðli starfsins og reglur um friðhelgi og öryggi gesta.

Helstu verkefni og ábyrgð

 

  • Klefagæsla fyrir grunnskólabörn sem sækja sund- og íþróttakennslu.
  • Að tryggja góða umgengni, öryggi og skipulag í klefum.
  • Leiðbeina börnum eftir þörfum og stuðla að jákvæðu og öruggu umhverfi.
  • Almenn þrif og frágangur á klefum og öðrum svæðum eftir þörfum.
  • Þjónusta við viðskiptavini, nemendur, kennara, íþróttaiðkendur og þjálfara þeirra
  • Bað – og sundlaugavarsla
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Krafa er gerð um gilt hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð um öryggi á sundstöðum Boðið er upp á námskeið fyrir alla starfsmenn við upphaf ráðningar
  • Viðkomandi þarf að vera jákvæður, með mjög góða samskiptahæfileika og ríka þjónustulund
  • Reynsla af því að vinna með börnum og unglingum er mjög mikilvæg (leikskóli, grunnskóli, íþróttaþjálfun)
  • Hæfni til þess að vinna á uppbyggilegan hátt í teymi er mikilvæg
  • Þekking og reynsla af skyndihjálp er mikilvæg
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður er mikilvægt
  • Samviskusemi og stundvísi er skilyrði
Advertisement published18. July 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Skólabraut 1, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags