Vistor
Vistor

Viðskiptastjóri - stafræn markaðssetning

Vistor leitar að öflugum liðsstyrk í frábært teymi Novo Nordisk. Við leitum að kraftmiklum einstakling með góða innsýn og brennandi áhuga á stafrænni markaðssetningu, fræðslu og eftirfylgni.

Novo Nordisk er leiðandi á sviði lyfjameðferða við offitu og sykursýki. Starfsfólk Novo Nordisk á Íslandi vinnur í nánu samstarfi við teymi Novo Nordisk í Danmörku.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stafræn markaðssetning lyfja á sviði offitu og sykursýki
  • Vinna við gerð og framsetningu kynningarefnis og fræðsluefnis fyrir almenning og heilbrigðisstarfsfólk
  • Árangursmælingar, gagnagreining og eftirfylgni markaðsaðgerða
  • Regluleg þjálfun og náið samstarf við birgja
  • Þátttaka í markaðs- og áætlunargerð ásamt þróun nýrra lausna í stafrænu markaðsstarfi
  • Þátttaka í viðskiptaþróun og greining vaxtatækifæra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem markaðsfræði, viðskiptafræði og menntun í heilbrigðisvísindum
  • Sterk innsýn í stafræna miðlun og brennandi áhugi á stafrænum markaðsmálum
  • Hæfni og þekking til að greina árangur markaðsherferða
  • Frumkvæði, sköpunarhæfni og góð samskiptahæfni í ræðu og riti
  • Frammúrskarandi hæfni til að semja skýran og vel uppbyggðan texta
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku.

Umsóknafrestur er til og með 15. febrúar og svörum við umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veita Arnar Þórðarson, framkvæmdastjóri, [email protected] og Harpa Víðisdóttir, sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustu, [email protected].

Stefna Vistor er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika meðal starfsfólks og hvetjum við einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum og heilsuvörum á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 50 einstaklingar. Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál og klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi.

Advertisement published6. February 2026
Application deadline15. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags