
Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn byggir upp og rekur ljósleiðaranet fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Með þéttu neti ljósleiðaraþráða tryggir Ljósleiðarinn hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar. Þannig gerum við allt mögulegt mögulegt. Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í ört vaxandi umhverfi ásamt því að vaxa og þróast innan fyrirtækisins.

Vilt þú stýra sölu og þjónustu hjá Ljósleiðaranum?
Sem forstöðukona/maður sölu og þjónustu munt þú leiða öflugt teymi sem sinnir viðskiptastýringu, sölu og þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina og hefur áhrif á hvernig viðskiptasambönd og þjónusta Ljósleiðaranas þróast til framtíðar. Þú situr í framkvæmdastjórn Ljósleiðarans og tekur virkan þátt í stefnumótun og sókn félagsins.
Við leitum að manneskju sem hefur náð umtalsverðum árangri í stjórnunarhlutverki, hefur næmt auga fyrir sölutækifærum og þjónustuferlum og nýtur þess að vinna með fjölbreyttum hópi fólks. Mikilvægt er að þú sért lausnamiðuð, með sterka samskiptafærni og hafir áhuga á að efla þjónustu og nýta stafrænar lausnir til að bæta upplifun viðskiptavina.
Eiginleikar og hæfni:
- Leiðtogahæfni og vilji til að byggja upp öfluga liðsheild
- Umtalsverð reynsla af stjórnun og rekstri
- Þekking og reynsla af því að nýta tækni og nýsköpun til að bæta þjónustuupplifun
- Menntun sem nýtist í starfi
Advertisement published3. February 2026
Application deadline17. February 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sölustjóri – Advise ehf
Advise Business Monitor

Framkvæmdastjóri Heilsu- og íþróttasviðs
Icepharma

Sviðsstjóri fyrirtækjasviðs
Olís

Viðskiptastjóri - stafræn markaðssetning
Vistor

Svæðisstjóri Norðurlands
Hreint ehf

Framkvæmdastjóri viðskipta
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Söludrifinn viðskiptastjóri
Straumur

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica

Viðskiptastjóri
Fortinet á Íslandi

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Viðskiptastjóri – Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið
Íslandsbanki

Innkaupastjóri verkefna
Rafmiðlun