

Vélstjóri
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfullan og kraftmikinn einstaklingi í starf vélstjóra í áhöfn á varðskipum stofnunarinnar. Viðkomandi þarf að geta starfað sem yfirvélstjóri og undirvélstjóri.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Vélstjórnarnám D
- Vélstjóraréttindi VS.I. að lágmarki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
- Góð almenn tölvufærni
- Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
- Kunnátta á ACON tölvukerfi og Helicon X3 tölvukerfi er kostur
- Búseta á Norðurlandi er kostur
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 240 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks. Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta - Fagmennska
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.













