Icelandia
Icelandia
Icelandia

Umsjón lengri ferða - sumarstarf

Við leitum að sjálfstæðum og nákvæmum einstaklingi til að hafa umsjón með ferðum á vegum Icelandia í sumar.

Starfið felur í sér upplýsingagjöf til viðskiptavina, samskipti við leiðsögumenn og birgja, gagnagerð fyrir leiðsögumenn, bókun á þjónustu o.fl. tilfallandi. Þekking á landinu og áhugi á gönguferðum og hvers konar útivist er æskileg. Bílpróf er nauðsynlegt og vinnutímabil er frá júní til og með ágúst. Starfið hentar vel fyrir námsfólk á háskólastigi.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Upplýsingagjöf til viðskiptavina.
  • Gagnagerð og upplýsingagjöf til leiðsögumanna.
  • Bókun þjónustu.
  • Samskipti við birgja.
  • Önnur störf sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla af starfi í ferðaþjónustu kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
  • Þekking á Íslandi og reynsla af gönguferðum er mikill kostur.
  • Góð tölvufærni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Nákvæm og ábyrg vinnubrögð.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Möguleika á vöxt í starfi.
Advertisement published3. February 2026
Application deadline17. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Reynsla af ferðaþjónustuPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Þekking staðhátta á Íslandi
Professions
Job Tags