
Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Undir vörumerki Icelandia starfa:
Almenningsvagnar Kynnisferða
Dive.is
Flybus
Garðaklettur
Hópbifreiðar Kynnisferða
Icelandic Mountain Guides
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Activity Iceland hefur boðið upp á sérferðir á breyttum bílum og lúxusferðir.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Enterprise Rent-A-Car er stærsta bílaleiga í heimi og starfar hér á landi undir vörumerki Icelandia. Félagið er með um 1.000 bíla í rekstri í langtíma- og skammtímaleigu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Jöklaleiðsögumaður - sumarstarf
Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum jöklaleiðsögumönnum sem hafa lokið AIMG Jökla 1 námskeiði til starfa í Skaftafelli. Við erum því að leita að miðlungs reyndum leiðsögumönnum sem vilja öðlast góða reynslu yfir sumarið. Unnið er skv. 7-7 vaktaskipulagi og húsnæði er í boði í vinnuvikum. Um tímabundna stöðu er að ræða frá apríl til október.
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðsögn í jöklagöngum í Skaftafelli og tengdum ferðum á svæðinu.
- Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- AIMG jöklaleiðsögn 1
- Gild ökuréttindi B eru nauðsynleg; D réttindi er kostur
- Góð færni í ensku í töluðu máli er skilyrði.
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af teymisvinnu og geta til að lifa í samlyndi með öðrum.
- Jákvæðni, snyrtimennska og stundvísi.
- Sjálfstæð, drífandi og skipulögð vinnubrögð.
Advertisement published15. January 2026
Application deadline26. February 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicOptional
Location
Skaftafellsvegur, 785 Skaftafell
Type of work
Skills
AIMG Jökla 1Driver's license (B)Human relationsDriver's license (D) Heavy vehiclesÖryggismeðvitundTeam workCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (7)

Bókari í kostnaðarbókhald - framtíðarstarf
Icelandia

Bókari í kostnaðarbókhald - sumarstarf
Icelandia

Bílstjóri á hálendisrútuna - sumarstarf
Icelandia

Undirbúningur ferða - sumarstarf
Icelandia

Umsjón lengri ferða - sumarstarf
Icelandia

Bílstjóri á skutlu í Skaftafelli - sumarstarf
Icelandia

Móttaka og afgreiðsla í Skaftafelli - sumarstarf
Icelandia
Similar jobs (12)

Tekjustjóri
Avis og Budget

Norðurland - Leiðsögumenn // Tour Guides in North Iceland
Iceland Travel

Bílstjóri/Driver Into the Glacier
Into the Glacier

Guide at Mega Zipline Iceland (for summer 2026)
Mega Zipline Iceland

Undirbúningur ferða - sumarstarf
Icelandia

Operations Manager – Tindasel
Tindasel - The Farm

Landverðir - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun

Þjónustufulltrúar - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun

Night Receptionist at Reykjavík Residence Hotel
Reykjavik Residence

Ökuleiðsögumaður – Sumarstarf 2026
Arctic Adventures

Atlantik leitar að öflugu sumarstarfsfólki
Atlantik

Bílstjóri á skutlu í Skaftafelli - sumarstarf
Icelandia