
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Stapasafn - Bókavörður
Starfssvið: Bókavörður
Stapasafn óskar eftir að ráða bókavörð í 70% starf við almenn störf í útlánadeild safnsins.
Stapasafn sem er hluti af Bókasafn Reykjanesbæjar vinnur samkvæmt framtíðarsýn safnsins sem samþykkt er af bæjarstjórn. Almenningsbókasöfn eru að þróast í spennandi átt og þurfa að vera í stakk búin til að takast á við nýjar áskoranir í upplýsingasamfélagi framtíðar.
Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta viðskiptavini í útlánadeild safnsins
- Öll almenn störf í afgreiðslu s.s. plöstun, röðun og þrif á bókum.
- Önnur tilfallandi verkefni bæði í Bókasafni Reykjanesbæjar og Stapasafni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða hliðstæð menntun og/eða starfsreynsla á bókasafni
- Góð almenn þekking, áhugi á lestri og bókmenntum
- Tölvu- og tungumálakunnátta
- Góð íslenskukunnátta og gott vald á ensku
- Góð færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
- Þjónustulipurð, jákvæðni, sjálfstæði og samstarfshæfni
Fríðindi í starfi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published3. June 2025
Application deadline9. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
Tech-savvyPositivityHuman relationsConscientiousIndependencePunctualFlexibilityCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Markaðsstjóri netmiðla
X18

Ísafjörður - Vaktstjóri
N1

Sölu- og þjónustufulltrúi í verslun
Casalísa

80% Hlutastarf (Njarðvík)
Just Wingin' it

Sumarstörf í Icewear Vestmannaeyjum
ICEWEAR

Lyfja Lágmúla - Sala og þjónusta á vaktarúllu
Lyfja

Hamborgarabúlla Tómasar hfj - Reykjavíkurvegur
Hamborgarabúlla Tómasar - Hafnarfirði

Afgreiðslustarf í apóteki
Apótek Garðabæjar

Áfyllingar og umsjón - sjálfsalar
Sjálfsalar.is

Newrest - Framleiðsla
NEWREST ICELAND ehf.

Rammagerðin og 66°Norður á Keflavíkurflugvelli
Rammagerðin

Grænmetis- og rekstrarvörulager í Reykjanesbæ
Skólamatur