

Lyfja Lágmúla - Sala og þjónusta á vaktarúllu
Viltu taka vaktina í Lyfju Lágmúla.
Um er að ræða fullt starf við sölu og afgreiðslu, en unnið er á dagvöktum, kvöldvöktum og um helgar samkvæmt vaktaplani. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera jákvæður og kurteis.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Um framtíðarstarf er að ræða og unnið er á vaktarúllu sem eru bæði dag, kvöld og helgarvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi geti haft störf í byrjun ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali í Lyfju Lágmúla, S: 533-2300 eða [email protected]
Allar umsóknir og fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.













