Securitas
Securitas
Securitas

Söluráðgjafi öryggislausna Securitas

Securitas leitar að metnaðarfullum söluráðgjafa til að ganga til liðs við kraftmikið teymi. Viðkomandi vinnur með þjónustulausnir sem tryggja öryggi heimila og fyrirtækja með faglegri öryggisráðgjöf og sölu. Við trúum því að framúrskarandi þjónusta snúist ekki bara um að loka samningum, heldur um að byggja upp traust og skapa lausnir sem virka. Viðkomandi starfar náið með samstarfsfólki til að tryggja að lausnir mæti þörfum viðskiptavina.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf og sala á öryggislausnum til nýrra og núverandi viðskiptavina á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði
  • Ábyrgð og eftirfylgni á tilboðsgerð
  • Viðskiptastýring (CRM) og eftirfylgni sölutækifæra
  • Tryggja að upplifun viðskiptavinarins sé til fyrirmyndar
  • Greining og mótun nýrra viðskiptatækifæra

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur áhuga á og reynslu af sölu og næmt auga fyrir tækifærum
  • Hefur reynslu af því að byggja upp, þróa og viðhalda viðskiptasamböndum
  • Býr yfir drifkrafti, lausnamiðaðri nálgun og hæfni í samskiptum í ræðu og riti.
  • Hefur menntun og reynslu sem nýtist í starfi

Reynsla í öryggisgeiranum er kostur, en áhugi á að læra á nýja tækni, kerfi og snjallar lausnir skiptir meira máli.

Við bjóðum spennandi og krefjandi starf hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í öryggis- og þjónustulausnum. Hjá okkur er frábært starfsumhverfi þar sem liðsheild og árangur fara saman og við leggjum mikla áherslu á góða þjálfun, aðbúnað og að styrkleikar hvers og eins fái að njóta sín.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Ingi Magnússon – [email protected]

Advertisement published22. July 2026
Application deadline9. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft CRMPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags