Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Merkjastýra í snyrtivörum - Ísland Duty Free leitar að þér!

Viltu vinna í einu líflegasta umhverfi landsins, umkringd/ur/t nýjustu snyrtivörunum frá stærstu íslensku og alþjóðlegu merkjunum? Hjá Ísland Duty Free á Keflavíkurflugvelli er fólkið alltaf í fyrirrúmi - bæði samstarfsfólk og viðskiptavinir. Við trúum því að bestu upplifanirnar verði til í hvetjandi, öruggu og mannlegu umhverfi þar sem metnaður fær að blómstra. Í þessu kraftmikla andrúmslofti leitum við nú að metnaðarfullri merkjastýru sem brennur fyrir sölutækni, framúrskarandi þjónustu og snyrtivörum.

Starfið er unnið á 10 tíma morgunvöktum sem hefjast á bilinu 4-6, auk stöku kvöldvakta sem hefjast á bilinu 14-17.

Um er að ræða starf þar sem er:

  • Einstakt tækifæri til að læra á stór og þekkt snyrtivörumerki
  • Unnið í alþjóðlegu og fjölbreyttu umhverfi þar sem enginn dagur er eins
  • Þjálfun í sölutækni, þjónustu og vöruþekkingu
  • Frábær starfsandi og öflugt teymi sem styður þig áfram

Ef þú ert drífandi, þjónustulunduð/aður/að og hefur gaman af snyrtivörum og líflegu starfsumhverfi, þá er þetta starfið fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita persónulega ráðgjöf og tryggja eftirminnilega upplifun viðskiptavina með öflugri sölutækni og þjónustu
  • Markviss sölusamtöl, krosssala og aukasala
  • Sérþekking á ákveðnum vörumerkjum
  • Tryggja að verslunin sé ávallt söluhæf, snyrtileg og spennandi
  • Virk þátttaka í daglegum verkefnum sem styðja við sölu
  • Sækja þekkingu frá birgjum og miðla til annarra starfsmanna
  • Styðja samstarfsfólk og leggja þitt af mörkum til jákvæðrar og lausnamiðaðrar vinnumenningar
  • Þátttaka í vörutalningum, lágmarka rýrnun með virku eftirliti og koma á framfæri ábendingum og umbótatillögum til verslunarstjóra
  • Áfylling, þrif og tryggja góða ásýnd sölusvæða
  • Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Brennandi áhugi og þekking á snyrtivörum, ilmum og húðvörum er skilyrði
  • Förðunarnám og/eða snyrtifræði er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og öryggi í samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina
  • Fagleg vinnubrögð, frumkvæði og vilji til að ná settum markmiðum
  • Geta til að vinna í teymi
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi

Líkamsræktarstyrkur
Ökutækjastyrkur
Mötuneyti

Advertisement published22. July 2026
Application deadline29. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags