66°North
66°North
66°North

Sölufulltrúi 66° Norður

66°Norður leitar að dugmiklum einstaklingum í verslanir 66°Norður á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða fullt starf og hlutastarf. Viðtöl verða tekin jafnt og þétt yfir umsóknarfrestinn og því hvetjum við áhugasama til að sækja um sem fyrst.

Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.

Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.

Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°Norður en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.

Í dag starfa tæplega 500 manns hjá Sjóklæðagerðinni og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi. Á Íslandi rekur Sjóklæðagerðin 12 verslanir undir vörumerkinu 66°Norður og í Kaupmannahöfn eru tvær verslanir þar sem sú fyrsta opnaði í lok árs 2014. Árið 2019 var opnuð skrifstofa í Lundúnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta viðskiptavini
  • Áfylling og framsetning vara
  • Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Brennandi áhugi á útivist og hreyfingu
  • Áhugi á sölumennsku
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku, kínversku eða öðrum tungumálum er kostur
  • Reynsla af sölustörfum kostur
Fríðindi í starfi

Starfsmenn  66°Norður fá góðan starfsmannaafslátt.

Advertisement published30. June 2026
Application deadline9. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Verslanir 66° Norður á Höfuðborgarsvæðinu
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags