
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Ráðgjafar- og greiningarstöð er miðlæg þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem starfar á þverfaglegum grunni og sinnir börnum að 18 ára aldri hvar sem þau búa á landinu. Hlutverk hennar er m.a. að annast greiningu og ráðgjöf vegna barna með víðtækar þroskaraskerðingar, sinna fræðilegum rannsóknum á þessu sviði og veita börnum með venjuflóknar eða sjaldgæfar fatlanir langtímaeftirfylgd. Öflun og miðlun þekkingar og þroskaskerðingar og fræðsla um helstu íhlutunarleiðir er enn fremur meðal hlutverka stofnunarinnar.
Sjúkraþjálfari
Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sjúkraþjálfara. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með raskanir í taugaþroska
- Mat og ráðgjöf varðandi hjálpartæki, umsóknir til Sjúkratrygginga og eftirfylgd
- Mat á skyn- og hreyfifærni með viðurkenndum próf- og matstækjum og klínískum athugunum, úrvinnsla og túlkun niðurstaðna ásamt mati á íhlutun eða úrræðum
- Skráning og skýrslugerð
- Sjúkraþjálfun í einstaka tilfellum t.d. ungra barna í smábarnateymi
- Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
- Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Advertisement published22. May 2025
Application deadline2. June 2025
Language skills

Required
Location
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags