

Ritari óskast
Langar þig að starfa með okkur þar sem góður starfsandi er til staðar, virðing og samvinna er höfð í fyrirúmi?
Við viljum bæta við okkur ritara hjá Livio Reykjavík. Ritarar okkar eru andlit fyrirtækisins og sinna fjölbreyttu starfi í spennandi fyrirtæki.
Livio Reykjavík er einkarekið fyrirtæki sem er sérhæft í rannsóknum og meðferðum á ófrjósemi. Við framkvæmum til dæmis tæknisæðingar, glasafrjóvganir og smásjárfrjóvganir. Við vitum að meðferð sem mætir þörfum sjúklinganna og tekur tillit til bæði líkamlegra og sálrænna þátta er forsenda þess að ná besta mögulega árangri.
Livio Reykjavík er rekin af Livio AB sem er stærsti aðilinn í meðferðum á ófrjósemi á Norðurlöndunum. Fyrirtækið er samsett af 10 tæknifrjóvgunardeildum í Svíþjóð, Noregi, Dubai og Íslandi með yfir 150 starfsmenn. Fyrirtækið rekur einnig eggja- og sæðisbanka í samstarfi við tæknifrjóvgunardeildirnar.
Livio AB er hluti af IVI RMA samsteypunni sem er leiðandi fyrirtæki í frjósemismeðferðum. IVI RMA rekur 190 frjósemismiðstöðvar víðsvegar um heiminn.
Markmið okkar hjá Livio eru fyrst og fremst að taka á móti og hjálpa fólki sem er að kljást við ófrjósemi. Við viljum veita öllum sem til okkar leita góða og faglega þjónustu sem og persónulegt og hlýlegt viðmót.
Helstu verkefni og ábyrgð eru að taka á móti skjólstæðingum deildarinnar á staðnum, svara símtölum og tölvupósti, taka við og halda utan um greiðslur og sjá um frágang gagna. Einnig að sinna ýmsum frágangi og umhirðu á deildinni og önnur tilfallandi verkefni.
- Reynsla af heilbrigðis-, þjónustu- eða verslunarstörfum
- Grunn tölvukunnátta
- Góð enskukunnátta er nauðsynleg
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni, þjónustulund og sveigjanleiki
- Vinnan okkar er teymisvinna og því er mjög mikilvægt að þú hafir mjög góða samskiptahæfileika og njótir þess að vinna með öðrum
- Nákvæmni, agi og frumkvæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni













