Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Spöng - þjónusta og ráðgjöf

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í þjónustu- og afgreiðslustarf í lyfjaverslun okkar í Lyfju Spönginni. Um er að ræða skemmtilegt starf í líflegu og faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á frábæra þjónustu og velferð viðskiptavina. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
  • þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Við leitum af einstaklingi sem hefur:

  • Ríka þjónustulund og jákvætt og gott viðmót
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Reynslu af verslunarstörfum (kostur)
  • Góða almenna tölvukunnáttu
  • góða íslensku- og enskukunnáttu

Vinnutími:

Um hlutastarf er að ræða. Vinnutíminn er frá 13:00 – 18:30 sem er tæplega 70% starfshlutfall (en einnig kemur til greina að vinna frá klukkan 14:00 sem er um 56% starf)

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við sameinum fagmennsku og hlýju í þjónustu okkar og vinnum stöðugt að nýsköpun og heilsueflingu.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir:

  • jákvæðan starfsanda,
  • tækifæri til að þróast í starfi,
  • að geta nýtt hæfileika sína til fulls.

Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum ríka áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið og býður þar með fjölbreytt og spennandi starfsþróunartækifæri.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og sé að minnsta kosti 18 ára.

Nánari upplýsingar:

Kristjana Ósk Samúelsdóttir, lyfsali<br> 📞577 3500<br> ✉️ [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Advertisement published5. August 2025
Application deadline19. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Spöngin 33-39 35R, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags