
Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hellinn
Félagsmiðstöðin Hellirnn leitar að frístundaleibeinendum/frístundaráðgjöfum til starfa fyrir skólaárið 2025-2026! Starfið hentar mjög vel meðfram háskólanámi.
https://www.youtube.com/watch?v=r_MHO4hV_Qk
Hellirinn er starfræktur fyrir ungmenni, 10-16 ára, með fötlun sem eru búsett í Breiðholti. Hann er opinn alla virka daga frá því að skóla lýkur og til klukkan 17:00. Markmið Hellisins er að vinna gegn félagslegri einangrun fatlaðra barna og unglinga. Starfið er einstaklingsmiðað og taka börnin og unglingarnir þátt í að móta dagskrána.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Í boði eru hlutastörf, 20 -50%, 2-5 daga vikunnar frá kl: 13:35-17:00 á daginn
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga í sértæku starfi.
- Að veita ungmennum með sértækar þarfir leiðsögn og stuðning
- Framfylgir stefnu skóla- og frístundasviðs í málefnum frítímans.
- Samráð og samvinna við börn, unglinga og annað starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra.
- Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með ungmennum í sértæku félagsmiðstöðvarstarfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Færni í samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta












