Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Félagsráðgjafi óskast í deild barna og fjölskyldna

Vesturmiðstöð óskar eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og fjölskyldur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

Vesturmiðstöð er framsækinn vinnustaður sem býður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á þjónustu við börn, fjölskyldur og skóla. Í boði er vinna í málefnum barna, skóla og fjölskyldna með metnaðarfullum hópi fagmanna eins og félagsráðgjöfum, kennsluráðgjöfum, sálfræðingum, hegðunarráðgjöfum og talmeinafræðingum. Starfið felur í sér þátttöku í sameiginlegu verkefni velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, Betri borg fyrir börn. Markmið verkefnisins er að efla þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra og þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs. Um fullt framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Félagsleg ráðgjöf við börn, unglinga, foreldra og starfsfólks skóla.
  • Taka þátt í þróun þjónustu á deild barna og fjölskyldna
  • Þverfaglegt starf á þjónustumiðstöð og við samstarfsstofnanir (s.s. heilsugæslu, barnavernd o.fl.)
  • Þekking og reynsla í vinnslu og meðferð mála sem tengjast börnum og fjölskyldum.
  • Þekking og reynsla á sviði velferðarþjónustu æskileg.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilding til að starfa sem félagsráðgjafi.
  • Viðeigandi þekking og reynsla á sviði félagsráðgjafar.
  • Þekking og reynsla af farsældarlögum og Betri borg fyrir börn er kostur.
  • Áhugi á þróun þjónustu félagsráðgjafar og þverfaglegs starfs.
  • Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, frumkvæði og leikni í mannlegum samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 (samkvæmt evrópska tungumálaramma).
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort Reykjavíkur
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
  • Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar
Advertisement published21. May 2025
Application deadline4. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Austurstræti 8-10 8R, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Cargo transportation
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags