Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Bókavörður á bókasafni Hafnarfjarðarbæjar

Bókasafn Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða bókavörð í 75% starf.

Bókasafn Hafnarfjarðar er upplýsinga- og menningarstofnun sem ætlað er að efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og fjölbreyttu efni og viðburðum. Um er að ræða vinnu á virkum dögum og einstaka laugardögum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afgreiðsla og almenn þjónusta við gesti bókasafnsins
  • Léttar heimildaleitir í bókasafnskerfinu Alma fyrir viðskiptavini bæði á staðnum og í síma
  • Aðstoða viðskiptavini við að setja inn pantanir á efni
  • Aðstoða viðskiptavini við útlán/skil á sjálfsafgreiðsluvélum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf æskilegt
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Reynsla af vinnu á bókasafni æskileg
  • Reynsla af þjónustustörfum kostur
  • Góð þjónustulund og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta og eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar í starfi

Upplýsingar um starfið veitir Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður, [email protected] sími 585 5691.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélaga Hafnarfjarðar (STH).

Umsóknarfrestur er til og með 20. September 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published10. September 2026
Application deadline20. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags