A4
A4
A4

A4 Akureyri – tímabundið hlutastarf

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa til starfa í verslun okkar Akureyri.
Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa. Um er að ræða tímabundna stöðu fram að áramótum með möguleika á áframhaldandi starfi eftir það. Vinnutíminn er breytilegur á milli mánaða og því ekki um fastar vaktir að ræða.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni.
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldur

Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Arna í síma 580-0063 eða gegnum netfangið [email protected].

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns

Advertisement published10. September 2026
Application deadline18. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Dalsbraut 147480, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags