

Húsasmíðameistari – Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið óskar eftir að ráða starfsmann í starf húsasmiðameistara í Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar. Þjónustumiðstöðin sér um umhirðu á bæjarlandinu og um margvíslega þjónustu og framkvæmdir fyrir bæinn, stofnanir og íbúa. Í Þjónustumiðstöð eru 20 50 stöðugildi. Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón, eftirlit, viðhald og viðgerðir á leiktækjum á leikvöllum bæjarins.
- Þáttaka í Almennum rekstur á trésmíðaverksæði hvað varðar að öll tæki séu í lagi og öryggismál höfð í öndvegi
- Kemur að umsjón, eftirliti, viðhaldi og viðgerðum á timburverki á opnum svæðum svo sem girðingum, útibekkjum, göngubrúm, tröppum, pöllum, leiktækjum o.fl.
- Ýmis nýsmíði á opnum svæðum, á opnum leikvöllum og á stofnanalóðum.
- Gerir verðkannanir og leitar eftir tilboðum í efni frá birgjum vegna ýmissa verkefna í umsjón viðkomandi
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Meistarabréf í húsasmíði
- Almenn og góð reynsla af trésmíðavinnu eða reynsla sem nýtist í starfi
- Almenn, góð tölvukunnátta
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Þjónustulund og jákvæðni
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um störfin veita Hafsteinn Viktorsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar í gegnum tölvupóst:[email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic



















