Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Aðstoðarforstöðumaður frístundar í Borgarnesi

Óskum eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til að starfa sem aðstoðarforstöðumaður frístundar í Borgarnesi.

Meginhlutverk frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn er að bjóða þeim innihaldsríkt frístundastarf í öruggu umhverfi þar sem við leggjum mikið uppúr lýðræðisþátttöku barna, vinnum í opnu starfi, klúbbum og sértæku hópastarfi. Leiðarljós frístundaheimila er að bjóða öllum börnum þátttöku í fjölbreyttu frístundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra. Einnig að bjóða upp á umhverfi sem einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir starfshættir eru í hávegum hafðir.

Um er að ræða 80-100% starf og unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundarstarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja, undirbúa og framkvæma frístundastarfið í samráði við þátttakendur og forstöðumann frístundar.
  • Efla virkni, ábyrgð, sjálfsmynd og sjálfstæði barna á frístundarheimilinu með fjölbreyttum og aldursviðeigandi viðfangsefnum.
  • Utanumhald yfir skráningar og samskipti við foreldra og aðra sem koma að frístundarstarfinu.
  • Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
  • Skipulag og utanumhald með sumarfjöri sem er leikjanámskeið fyrir börn í 1.-4 bekk ásamt forstöðumanni.
  • Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn frístundar í Borgarbyggð.
  • Er faglegur leiðtogi og tekur virkan þátt í starfi með börnum á starfstíma frístundaheimilis
  • Er staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði uppeldis, félags- eða tómstundamála eða önnur sambærileg menntun.
  • Reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
  • Góð íslenskukunnátta í mál og riti
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
Advertisement published22. April 2025
Application deadline6. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Gunnlaugsgata 13, 310 Borgarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags