Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri

Nám í fíkniráðgjöf - Önn 2

Námið veitir grunnþekkingu um fíknisjúkdóminn, um áhrif vímuefna á líkama og hegðun, um afleiðingar fíknisjúkdóms á fólk, fjölskyldur og samfélag. Námið gefur innsýn í ráðgjöf fyrir fólk með fíknisjúkdóm, faglega framgöngu í ráðgjafastarfi, og hugmyndafræði og siðfræði áfengis og vímuefnameðferðar. Einnig öðlast nemendur þekkingu á helstu gagnreyndu meðferðum sem styðja fólk til bata.

Námsmarkmið:

Að námi loknu á hver nemandi að hafa öðlast :

  • innsýn í stöðu og vanda fólks með fíknisjúkdóm og aðstandenda þeirra
  • Skilning á helstu leiðum til að styðja fólk til bata
  • Skilningur á fíknisjúkdómnum og fíknivanda, orsakir, afleiðingar og tengdir kvilla
  • Skilningur á áhrifum vímuefna
  • Skilning á hugmyndum um meðferð og ráðgjöf, og helstu klínísk vandamál fólks með fíknisjúkdóm út frá líf-sál-félagslegu módeli.
  • Skilning á sálfræðikenningum sem liggja til grundvallar inngripa, bakslagsvarnir, forvarnir og fleira.
  • Skilning á áhrifum fíknivanda á samfélagið

Námið telur þrjár annir og er þetta önnur önnin. 

Starts
15. Aug 2025
Type
Remote
Price
150,000 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Símenntun Háskólans á Akureyri