Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Vaktstjóranámskeið - leiðtogahæfni og samskipti

Góður vaktstjóri þarf að geta leitt fólk, átt skýr samskipti og brugðist við ólíkum aðstæðum í daglegu starfi. Á námskeiðinu er farið yfir helstu þætti góðrar stjórnunar og hvernig vaktstjórar geta styrkt sig í hlutverki sínu. Áhersla er lögð á mannlega þáttinn í stjórnun, breytt viðhorf til vinnu og þær væntingar sem starfsfólk gerir til stjórnenda í dag. Sérstaklega er fjallað um sýn og væntingar ungs fólks og hvernig stjórnunarhættir og samskipti geta tekið mið af þeim. Námskeiðið byggir að stórum hluta á samtölum og rökræðum þar sem þátttakendur deila reynslu, skoða ólíkar aðstæður og ræða hvernig og hvers vegna stjórnendur velja ákveðnar leiðir í starfi.

Fyrir hverja:

Vaktstjóra, þjónustufólk og aðra starfsmenn í veitinga- og þjónustugeiranum sem sinna eða stefna á stjórnunarhlutverk og vilja efla leiðtogahæfni sína.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist aukinn skilning á hlutverki og ábyrgð stjórnanda og styrki hæfni sína til að leiða fólk með faglegum samskiptum og tilliti til ólíkra þarfa og væntinga starfsfólks.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hlutverk stjórnanda og helstu þætti góðrar stjórnunar
  • Mannlega þáttinn í stjórnun og samskiptum
  • Breytt viðhorf til vinnu og væntingar til stjórnenda
  • Sýn og væntingar ungs fólks á vinnumarkaði
  • Nútímalega stjórnunarhætti og beitingu þeirra í daglegu starfi
  • Rökræður og samræður um „hvernig“ og „af hverju“

Að loknu námskeiði á nemandi að:

 

  • Þekkja helstu þætti góðrar stjórnunar og ábyrgð vaktstjóra
  • Skilja mikilvægi mannlega þáttarins í stjórnun
  • Geta tekið mið af ólíkum viðhorfum og væntingum starfsfólks
  • Geta nýtt fagleg samskipti til að leiða fólk í daglegu starfi
  • Geta rökstutt val á stjórnunarháttum við ólíkar aðstæður
Hefst
4. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar