Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Grunnnámskeið í blómaskreytingum

Námskeið fyrir þau sem hafa áhuga á að fegra umhverfi sitt með blómum og skreytingum og vilja læra undirstöðuatriði í blómaskreytingum.

Þetta er tveggja daga grunnnámskeið er ætlað þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í blómaskreytingum og vinna í blómaverslunum, veitingageiranum eða ferðaþjónustu eða hafa það í hyggju. Einnig hentar námskeiðið vel öllum þeim sem hafa áhuga á að fegra umhverfi sitt með blómum og skreytingum, hvort sem er heima eða annars staðar.

Fjallað verður um helstu tegundir afskorinna blóma og meðferð þeirra. Nemendur fá verklega kennslu við skáskurð, hreinsun blómstilka og framsetningu blóma.

Farið verður í uppbyggingu blómavanda og helstu strauma og stefnur í blómvöndum. Einnig verður farið í einfaldar skreytingar.

Lögð verður áhersla á að nota íslensk blóm og efnivið úr náttúrunni í nærumhverfi okkar.

Rík áhersla verður lögð á góða nýtingu á efni sem og fagleg vinnubrögð.

Námsgögn, kaffi, hádegismatur og efni innifalið, þátttakendur taka með sér blómaskreytingar heim að loknu námskeiði

Kennari er Valgerður Jóndís Guðjónsdóttir blómahönnuður.

Námskeiðið er haldið af Garðyrkjuskólanum - FSu.

Hefst
5. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
2 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar